|
|
29.03.2007 09:24:09 / tinna
Það er allt að stefna í mjög annasama páska hjá mér. Það er amk
þrjár manneskjur að koma frá Englandi, sem ég ætla að hitta og
skemmta mér með Dagbjört, kemur t.d. á morgun og ég get
varla beðið. Efast ekki um að við eigum eftir að slúðra mikið og um
margt og síðan gera eitthvað fleira skemmtilegt, t.d að fara í
fermingu!
Annað sem ég ætla að gera um páskana er að fara upp í Bláfjöll á
snjóbrett svo það er eins gott að það verði opið. Fór í fyrsta
skipti á bretti á þriðjudaginn og ég held að ég sé ekkert að ljúga
þegar ég segi að þetta sé það erfiðasta sem ég hef gert, en alveg
ógeðselga skemmtilegt. Ég er að vísu öll marin og blá og með
geðveikar harðsperrur út um allan líkama, en þetta var samt þess
virði. Ég vill þakka Robba fyrir kennsluna, stóð sig eins og hetja
og á endan gat ég staðið upprétt á brettinu og ekki dottið á 5 sek
fresti. Ég tel það vera afrek og er geggjað stolt af mér 
»
19.03.2007 12:43:31 / tinna
Úbbbs... ekkert búið að gerast á þessari síðu í langan tíma, eða
alveg síðan að ég flutti heim!
En hérna kemur summary af því sem er búið að gerast síðan ég kom
heim: VINNA og aftur VINNA. Geri lítið annað þessa dagana en að
vinna og sofa. Er að vísu að plata smá, ég fer í ræktina þar
sem Stellos aka Hitler er með mig í einhverju andskotans átaki
í Laugum og við erum að tala um að ég er með harðsperrur út um
allan líkama, puttunum, tánum og alles! Ég er viss um að
Stella er dóttir íþróttaálfsins og borði bara spínat á daginn því
það er ekkert annað sem getur útskýrt þennan dugnað í henni. Ég fer
að gefa henni róandi bráðum svo ég fái einhvern frið til þess að
borða nammi og subbumat 
Eitt annað sem ég er að gera þessa daga er að leita mér að íbúð.
Það er að ganga mjög hægt því ég er svo pikkí að það hálfa væri
helmingi meira en nóg. Er búin að skoða svona 30 íbúðir og er ekki
búin að sjá neitt sem mig langar í. Sumar íbúðirnar eru svo
ógeðslega að mig langar bara heim í bað eftir að hafa skoðað
íbúðina. Sumt fólk eru bara SÓÐAR. Og síðan er það eitt sem pirrar
mig meira en orð fá líst, fólk sem er að taka myndir af íbúðinni
sinni og kann ekki einu sinni á myndavélar. Myndirnar eru
allar dökkar og ljótar og sýna frekar ruslið inni hjá fólki en
íbúðina sjálfa. Hvað er þannig fólk að spá?.... Þetta hlítur samt
að fara að koma hjá mér, finn að tilvonandi íbúðin mín er að koma

»
29.11.2006 12:59:49 / tinna
Ég er að flytja heim til Íslands!!!!! Hlakka ekkert smá til og
er farin að telja niður dagana, nákvæmlega 16 dagar í Íslandsför.
Ég flyt heim þann 15. desember og þá verður sko stuð. Verð að vísu
"einhleyp" í tvo mánuðu þar sem Jason flytur ekki fyrr en í mars en
það verður bara reynsla út af fyrir sig. Ég er gjörsamlega búin að
slökkva á þessari útlandaþrá minni, búin að finna það út að Ísland
er ekkert svo slæmt land eftir allt saman og að grasið er ekkert
grænna handan við hornið! Fann það í sumar þegar við hjónin fórum
hringinn (í kringum Ísland) hvað ég hafði breyst, áður fyrr
þegar ég var að ferðast um landið var ég sofandi í
aftursætinu þar til að við vorum komin á leiðarenda. En ekki í
sumar, ég tók að mér hlutverk leiðsögumannsins og var stolt af
hverju einasta sandkorni sem við keyrðum framhjá Vonandi á
þetta ekki eftir að breytast aftur, þar sem ég er búin að lofa þó
nokkrum að ferðasta mikið næsta sumar og fara að labba upp á fjöll
og ég veit ekki hvað!
Hlakka til að sjá þig!
»
24.11.2006 13:40:57 / tinna
26 ára í dag, það er ekkert annað. Ég hef alltaf skrifað
afmælisblogg og ekki má það gleymast þetta árið. Ég er búin að hafa
það mjög gott í dag, fékk gjafir í morgunsárið, köku og kampavín í
hádeginu og svo er planið að fara út að borða í kvöld, gaman
gaman!
»
09.11.2006 12:09:44 / tinna
Ég er búin að setja inn nýjar myndir inn á myndasíðuna mína.
Vona að allir finni eitthvað við sitt hæfi 
»
29.10.2006 18:50:33 / tinna
Skemmti mér rosalega vel í gær. Hitti Beggu vinkonu í London en
hún kíkti hingað á eitt stykki árshátíð. Ég byrjaði daginn
mjög snemma og ekki veiti af þar sem lestarferðirnar gengu ekkert
sérlega vel, þurfti að fara fram og til baka og loksins komst ég á
leiðarenda, eftir mikið ferðalag. Ferðin var heitið til Camden
Town, alltaf gaman að sjá eitthvað annað en Oxford Street. Höfðum
það gott að við fengu okkur dessert í morgunmat, ekkert smá flottar
á því. Þræddum síðan 40% af svæðinu, keyptum aðeins af
dóti, hlóum mikið af öllu dótinu sem hægt var að
kaupa og auðvitað horfðum við á allt skrítna
fólkið enda mikið af því í Camden.
Síðan var ferðinni heitið í Covent Garden þar sem til stóð að
versla aðeins meira en engin var í stuði, gott fyrir budduna en
slæmt fyrir búðirnar. Fórum frekar á uppáhaldsbarinn minn í
Covent Garden og fengum okkur eina hvítvínflösku...Og ein flaska
varð af tveim....Og tvær urðu af þrem....Begga komst á sjens með
manni sem var klæddur í g-streng, rosalega flottur rass....Þrjár
flöskur urðu af fjórum og þá var komin tími á að gellurnar færu að
hafa sig til fyrir árshátíðina og leiðir okkar skyldu!
Ég komst í lestina heim þó svo að ég hafi séð allt tvöfalt
og svaf alla leiðina til Peterborough, algjör snilld! Dagurinn í
dag hefur farið í þynnku en það er allt í lagi svona annað slagið.
Held að gellurnar hafi nú verið í verri ástandi en ég í daga enda
komm það í fréttunum að tvær ungar konur frá Íslandi hafi verið
yfirheyrðar fyrir læti og skemmdarverk á hótelhergi, samlokur um
alla veggi! Voru þetta þið Begga? 
Takk fyrir frábæran Laugardag Begga og Carol, ég set myndirnar
inn á næstu dögum!
p.s Bið að heilsa fjármálastjórarnum Begga 
»
15.10.2006 20:41:35 / tinna
Föstudagar eru bestu dagar í heimi, þegar ég sé fram á tveggja
daga frí en svo kemur Sunnudagur! En hvað um það.... Við hjónin
skemmtum okkur vel um helgina og skelltum okkur á tónleika á
föstudaginn, Fórum alla leið til London til þess að hlusta á
Peaches í Camden Town og þessi kona er snillingur. Hef sjaldan
skemmt mér jafn vel á tónleikum og við dönsuðum af okkur báða
rassana Svo spillti nú ekki fyrir að ég hitti fyrsta
"cellebe-ið" mitt, þó svo að ég hafði ekki hugmynd um það fyrr en
hún sagði mér það.... Mel tók þátt í fyrsta Big Brother fyrir 6
árum síðan og fólk er enn að tapa sér þegar það sér hana! Bretar
eru svo fyndnir. Enduðum á djamminu með henni og vini henar og
drukkum eins og svampar og skemmtum okkur vel.
Laugardagurinn fór í þynnku hjá mér en ég sendi Jason í vinnuna
eftir 2 tíma svefn, einhver verður að vinna fyrir vitleysunni! Um
kvöldið fórum við út að borða á grískan veitingastað í fyrsta
skipti, er ekki mikið fyrir nýjungar! Þar sem við vorum þarna í
fyrsta sinn fórum við í pínu leik, bara upp á
grínið... ég pantaði mat fyrir Jason og hann fyrir mig! Og
viti menn, okkur líkaði allt sem við pöntuðum! Algjör snilld og
geðveikur matur. Frábær helgi sem sagt, en alltof fljót að líða
eins og venjulega!
Ég er búin að setja inn nýjar myndir á síðuna mína, t.d. myndir
af Yoda og meira skemmtilegt. Endilega látið mig vita ef þið haldið
að "amma" sé eins og Yoda 
»
06.10.2006 16:08:59 / tinna
Jæja þá er ég komin aftur "heim" til Bretlands. Þetta getur
verið mjög flókið allt saman því ég tala um að fara heim þegar ég
er að tala um Ísland en geri nákvmlega það sama þegar ég er að fara
aftur til Bretlands...og engn skilur upp og niður í því sem segi
(að vísu gerir það ekki nokkur maður) Það tók svo sannarlega á að
fara í þessa ferð enda að vera eina konan í 21 manna hópi er ekkert
grín. Ég væri frekar til i að fara með 20 leikskólakrökkum, þau
geta þá allavegana leikið sér saman svo lengi sem þau hafa nægt
pláss, mat og fá að sofa. Ætlaði að hitta stjórnarstelpurnar mína á
mánudaginn en það gekk ekki upp þar sem einhver týndi vegabréfinu
sínu, annar týndi lyklunum sínum og það var örugglega einn eða
tveir sem þurfti hjálp við að fara á klósettið Ég náði rétt
svo að hoppa í sturtu áður en ég fór út að borða, við erum
eiginlega að tala um að ég var enn með næringuna í hárinum þegar ég
mætti! En ferðin gekk þrátt fyrir allt vesenið mjög vel og allir
voða ánægðir með Ísland.
Og núna er bara komin helgi, ekki slæmt! Planið er að gera lítið
sem ekki neitt um helgina, reyna að vinna um kraftinn sem fór í
Íslandsferðina. Okkur hjónunum er reyndar boðið í afmæli hjá ömmu
hans Jason ( hún er ekkert smá krúttleg og er alveg eins og Yoda í
Star Wars, pínulítill með staf) Ef þú trúir mér ekki þá skal ég
taka myndir af henni og setja á myndasíðuna mína Eigum
pottþétt eftir að skemmta okkur konunglega því hún er svo mikill
snillingur, drekkur óblandað vodka eins og vatn, segir skemmtilegar
sögur og er ekkert smá kaldhæðin! Pant vera svona þegar ég verð
gömul...
Skelli myndum inn um helgina fyrir Stellu og Beggu , góða
helgi allir saman!
»
26.09.2006 14:35:30 / tinna
Tinna er á leiðinni til landsins ásamt fríðu föruneyti, kem til
landsins með 16 karlmenn í fararteskinu....við erum að fara að
skoða ýmislegt hjá Marel og svo eitt stykki svínabú, gæti þetta
verið eithvað betra. Á samt ekki eftir að hafa mikinn tíma fyrir
mig þar sem það er stíf dagskrá allan daginn og aðeins stoppað í
einn og hálfan dag!
Ég er búin að setja inn fleirri myndir á myndasíðuna mína svo
endilega skoðið þær ef ykkur leiðist í vinnunni Læt ykkur
síðan vita hvenig var á svínabúinu og jafnvel set ég nokkrar myndir
með ef þið eruð heppin!
»
21.09.2006 15:11:16 / tinna
Ég er komin með myndasíðu á síðuna mína. Þú getur fundið linkinn
hérna til vinstri undir "Myndasíðan mín" Ætla mér að vera dugleg að
setja inn myndir inn og við skulum vona að ég verði betri í því en
að blogga 
Stella fær sérstakar þakkir þar sem hún reddaði mér þessari
síðu. Hún er náttúrulega algjör snillingur þessi elska. Ég hefur
fengið mig til þess að brosa allan kringinn í dag. Húrra fyrir
Stellu sem var eitthvað að byrja með nýja síðu, www.stellos.blogspot.com
»
14.09.2006 12:15:23 / tinna
Ég var búin að skrifa þvílíka ritgerð en síðan dó tölvan
mín!
Þar sem Begga hefur svo lítið að gera í vinnunni sinni og
er alltaf að suða í mér að blogga þá ákvað ég loksins að láta
eftir. Takk Begga fyrir að þrýsta á mig, ef ég ætti þig ekki að þá
væri ekkert á þessari síðu 
Margt sniðugt búið að gerast síðan síðast, eitt stykki
bjórhátíð, ferðalög út og suður með vinnunni, heimsóknir frá
Íslandi, þriggja rétta matarboð fyrir tengdó, afmælið hans Jasons
og djamm og djús. Halla og Ömmi komu til okkar í 8 daga, ekkert smá
gaman að fá þau í heimsókn. Margt gert á meðan þau voru hérna,
mikið drukkið og ýmis framtíðarplön rædd. Ég og Jason eigum eftir
að sakna þeirra mjög mikið og hlökkum til að sjá þau aftur
fljótlega.
Um helgina ætla ég að skella mér til London og hitta Sólrúnu
gellu og Héðinn töffara. Ætla að fara með þau á Portabello
markaðinn og eitthvað fleira skemmilegt. Efast ekki um að það verið
mikið slúðrað í þeirri ferð og hef ég hugsað mér að skrifa það
niður fyrir Dagbjörtu þar sem hún kemst ekki með mér 
Síðast enn ekki síst þá komu tvö börn í heiminn þann 11.
September. Til þess að byrja með viil ég óska Svanhildi, Matta
og Maríönnu Hlíf innilega til hamingju með litla prinsinn. Hann er
ekkert smá lítill og sjúklega sætur eins og stóra systir hans.
Síðan eignuðist besti vinur hans Jasons litla stelpu sama daga og
"Congratulations Sean and Hillary".
»
30.07.2006 20:45:46 / tinna
Búið að vera ógeðslega heitt hérna síðan við komum heim
frá Íslandi, við erum að tala um yfir 25 stig á hverjum degi
og rosalegur raki. Ég veit að fólk á Íslandi er að vera
geðveikt á veðrinu heima, alltaf rigning og rok en ég væri frekar
til í svoleiðis veður en þennan viðbjóð, að geta ekki sofið
fyrir hita, alltaf í svitabaði (smekklegt), verða stungin af
ógeðslegaum flugum og viðbjóðslega þreytt. Fór einmitt
í apótekið áðan og keypti upp lagerinn af
flugnabitsspreyi, flugnabitsáburði, flugnabitskremi eða hvað
sem þetta allt saman heitir. Konan í apótekinu spurði mig hvert ég
væri að fara í sumarfrí, hélt örugglega að ég væri að fara til
Tælands eða eitthvað álíka. Ég hélt að hún myndi deyja úr hlátri
þegar ég sagði henni að ég væri ekki að fara neitt heldur væri
svona rosalega vinsæl hjá flugunum í Bretlandi.
Og svo segja einhverjir fræðingar í sjónvarpinu að það eigi að
vera heitara í ágúst! Ég á eftir að deyja... Þannig að ef
fólk er orðið geðveikt á Íslandi þá mæli ég með Bretlandi í
ágúst...
»
28.07.2006 11:04:34 / tinna
Já já ég veit að ég er ekki búin að vera dugleg í smá tíma,
sorry. Búið að vera mikið að gera hjá mér í vinnunni og svo
náttúrulega fór ég í mitt fyrsta sumarfrí til Íslands. Ég og Jason
skemmtum okkur ekkert smá vel og ég vil þakka öllum sem buðu okkur
heim kærlega fyrir. Við náðum að afkasta ekkert smá miklu á stuttum
tíma, fórum hringinn í kringum Ísland, skelltum í "brúðkaup"
(varðeld og grill daginn eftir brúðkaup), Jason hitti enda laust af
fjölskyldumeðlimum og vinum sem hann hefur aldrei séð og skemmti
sér rosalega vel, fórum í grillveislu með stjórninni og endalaust
meira. Enduðum svo ferðina á því að vera "veik" aka svo þunn að við
vorum upp í rúmi allan daginn og reyna að halda okkur á lífi
Við erum strax farin að plana næstu Íslandsferð og hvað við ætlum
að gera þá.
Næsta mál á dagskrá er síðan að fá Höllu og Ömma í heimsókn í
ágúst og ég efa ekki að við eigum eftir að dralla eitthvað sniðugt
saman. Veit að á sama tíma og þau verða í Peterborough er búið að
skipuleggja risastóra bjórhátíð sem við eigum pottþétt eftir að
vera tíðir gestir á.
Þanngað til næst, bæjó
»
28.06.2006 16:22:48 / tinna
Þá er það komið á hreint, ég og Jason komum heim í
sumarfrí. Var að klára að kaupa miðana fyrir örfáum mínutum og
er ekkert smá glöð. Komum að vísu ekki með sömu vélinni til
landsins en það skiptir engu máli svo lengi sem við komum bæði
Okkur langar að hitta
sem flesta og sjá sem mest, þannig að ég er að reyna að plana þessa
ferð ótrúlega vel. Strax búið að plana útilegu,
klippingu, fjölskyldigrill, jöklaferð, grill hjá
Stellos og svo auðvitað djamm downtown Reykjavik. Vá með
þessu framhaldi verðum við þreyttari þegar við komum aftur í
Englands 
Hlakka til að sjá
alla eftir nokkra daga.....
»
26.06.2006 08:48:46 / tinna
Já ég spyr mig. Fór á pöbbinn í gær og horfði á England spila og
ég verð bara að viðurkenna að ég skemmi mér rosalega vel....Ekkert
smá mikið stuð og allir að syngja og öskra, ég var meira að segja
farin að öskra á strákana...alltaf eitthvað nýtt 
Skemmti mér vel um helgina. Annað en að horfa á fótbolta þá
hitti ég hann Kolbein Tuma, en litli kallinn kom hingað til
Englands aleinn og fréttir herma að hann vilji ekkert fara heim.
Fór líka á útihátíð við ánna mína en það voru svo margar
flugur þar að ég meikaði ekki að stoppa lengi. Jason er að hugsa um
að senda mig á námskeið við flugu og skordýrafælni, hann segir að
ég sé ekki normal þegar kemur af dóti með vængi og margar lappir.
Ég var næstum búin að fótbrjóta mig um helgina því ég varð
fyrir árás frá vespu...ég held því fram að hún hafi verið alveg við
hausinn á mér en Jason telur að hún hafi verið svona 5 metra í
burtu...Hverjum er ekki sama! Þegar ég verð alheimsforseti þá ætla
ég að útrýma ógeðis flugum og skordýrum. Og þið þarna sem segið að
fuglarnir hafi þá ekkert til að borða, ég finn lausn á því
vandamáli!
»
Síður: 1 2 3 4
|
|